Be Cool or die a fool..
Crazy people
Svöl video
Hnitmiðað stuff
07.09.2006 23:07:50 / hansberg

Hvað er að frétta?

Whaaaat´s uuuuup?????

OK. Veit ekki hvar ég á að byrja. Mikið af fólki búið að vera að reka á eftir manni að koma með nýja færslu. Þannig að það var bara eitt að gera. KOMA MEÐ NÝJA FÆRSLU:!:

Núna er maður búinn að vera frekar busy, ég og Ása erum nefninlega búin að vera að flytja! Við erum flutt í roooosalega nice íbúð í Seljahverfinu. Allir velkomnir í heimsókn. En þið verðið samt að taka með ykkur stóla og bolla og það sem þið viljið drekka!!!!
Nei djók :haha:
Auðvitað er maður með allt á hreinu, allar græjur til staðar. En samt megið þið búast við að þurfa að gera allt sjálf, afþví að við keyptum okkur geðveikt þægilegan sófa og þar ligg ég fastur alla daga!!!! ;)
Nei djók :haha::haha:
En allavega allir velkomnir. En ekki koma margir í einu, helst bara svona einn í einu, það má ekki fylla íbúðina :haha::haha::haha::haha::haha::haha:
Nei, enn og aftur heavy DJÓK!!!

Ég og Ása fórum í bíó í gær. Sáum United 93. Þetta er rosaleg mynd um 11 sept. hryðjuverkaárásirnar. Rosalega vel gerð, þannig að maður situr bara alveg lamaður yfir allri illskunni. Hún hafði svo mikil áhrif á Ásu að hún gat ekki farið að sofa ein:D. Ég ætlaði að chilla aðeins í Godfather leiknum mínum eftir bíóið, en þessi litla krútta grátbað mig um að koma að sofa því að henni leið svo illa yfir myndinni. Og ég gat ekki annað en farið að sofa með henni.
Ég mæli með henni við alla. Þetta er 5 stjörnu mynd. Klárlega!!!!

Svo langar mig að spurja ykkur að einu. Á maður ekki að fylgja eftir draumum sínum og læra það sem mann langar mest til að vinna við. Þó svo að maður hafi tekið rangar ákvarðanir???

Ég vil taka það fram að ég er einn heima. Ása fór til Akureyrar í dag. Hún skildi mig eftir með fullt af verkefnum þannig að ef einhver vill létta mér lífið, þá má hann koma og gera þetta fyrir mig, því að ég er auðvitað fastur í sófanum :haha::haha::haha:
En án gríns allir velkomnir!!!!

ps. endilega komiði með smá krítík, ef ykkur finnst bloggið leiðinlegt!!!!

Peace Out


» 14 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 20:15:08 / hansberg

Palli var einn í heiminum, eða var það kannski Einar???

yoyo Dawg....

A handsome man enter..8)

Heads up, he´s back :!:

Jæja, maður er bara búinn að vera í ruglinu. Að detta ofan af þaki og brotna á báðum höndum. Þvílíkur klaufaskapur.

Síðasti mánuður er búinn að vera frekar einmanalegur. Eftir að ég handleggsbrotnaði hef ég kynnst einverunni mjög náið. Málið er að maður á alveg góða að og æðislega kærustu. En lífið hjá fólki heldur víst áfram þó að maður lendi í slysi. Þannig að mikið hefur verið glápt á Tv-ið(eða tölvuna) búinn að afgreiða 5 seríur af The shield sem eru by the way snilldar þættir. Og svo er ég að klára seríu 2 af Joey, sem eru mjög fyndnir þættir.

Ég vil bara þakka þeim sem að hafa gert mér lífið bærilegt og aðstoðað mig í öllum þessum klaufaskap :!:

Ása: Mér þykir fyrir því hvað ég er búinn að láta þig ganga í gegnum á þessum tíma. Þú ert sú allra besta sem að til er. Og ég ætla ekki að byrja að telja upp það sem þú hefur  gert fyrir mig. Ef ég gerði það að þá yrði þetta frekar löng færsla. Love U

Mamma og pabbi: Þið eruð alltaf solid:!:

Helga systir: Þú ert búin að vera dugleg að aðstoða mig, t.d. að klæða mig í buxur og svona.

Heimir og Ingibjörg: Thanx fyrir allar þær stundir sem þið hafið séð af fyrir mig og fyrir allt skutlið.

Höddi og Hulda, Eyrún og Sæþór: Takk fyrir að bjóða mér í mat og mata mig. :lol:

Hilmir og Ingvar: Bíóferðirnar björguðu lífi mínu :!::!:

Og þið hin sem að hafið sent mér hlýar kveðjur og hugsað vel til mín. Þið eruð snillingar.

 

Later....

 

 




» 13 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 23:50:11 / hansberg

Hvað viltu vita?

Wor´up- wor´up.... 

Jæja jæja.... Ég hef orðið var við það að fólk er farið að þyrsta í nýja færslu frá stráksa. Ég var á röltinu í bænum í gær(17. júní) með ástinni í lífii mínu(Ásu) og þá komu, fyrst Hermann Hreiðarsson og svo Auðunn Blöndal og síðast en ekki síst stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson upp að mér hver í sínu lagi og spurðu "Hva, á ekki að fara að ryðja út einni nýrri og ferskri færslu?" Og ég bara alveg "Vó mar" og hugsaði því með mér "Nú þarf ég að rífa upp um mig buxurnar, taka mér taki og taka mig saman í andlitinu og hripa niður einni færslu:!::!::!::!:
En ég veit bara ekkert hvað ég á að skrifa, þannig að ég ætla bara að hafa þetta þannig að þið spurjið mig, "Celebið" að hverju sem þið viljið vita um stráksa og ég mun svara því hreinskilnislega og heiðarlega. Þið megið spurja fleiri en eina spurningu í einu. Og endilega komiði með einhverjar skemmtilegar challenge spurningar!!!!

Þannig að nú er boltinn í ykkar höndum :haha::haha:

ps. verðlaun eru veitt fyrir athyglisverðustu spurninguna. Ég hef valið sérstaka dómnefnd til að velja hana..

» 20 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 15:32:44 / hansberg

HM

Welcome....

Loksins, loksins. HM er byrjað:D og næsti mánuður verður þétt skipaður af sjónvarpsglápi, sem að gæti endað í hringlóttum augum8|.
Ég persónulega held að Brasilí eigi eftir að klára þetta mót, en þjóðir eins og Spánn, Holland, Frakkland og Argentína gætu veitt þeim harða keppni. Gaman væri að þið munduð tjá ykkur um það hvaða þjóð er líklegust.

Ingibjörg kærastan hans Heimis var að fara til Spánar, nánar tiltekið Sevilla með vinkonu sinni henni Ósk. Þær eru að fara í spænskuskóla. Ég persónulega held að það verði ekki mikið lært, meira svona sólbað og chill. :haha: Ég vona að þær fari varlega og skemmti sér vel. En ekki má gleyma honum Heimi, hann verður einn í mánuð. En ég held að hann eigi eftir að detta skemmtilega inn í það sem ég skrifaði fyrst. Þannig að tíminn ætti nú að fljúga áfram fyrir hann.

Ása var að fara í vinnuna. Vonandi gengur henni vel, ég veit nú að henni gengur alltaf vel í vinnunni. Enda elska ég hana :D

Skemmtilegt blog? Tjáið ykkur líka endilega um það. Ég tek allri gagnrýni vel.(eða misjafnanlega vel)

Svo langar mig að segja við allar þær konur sem eiga eiginmenn eða kærasta sem að sökkva sér í boltann á meðan á keppninni stendur. Ekki vera að tuða í þeim, takiði ykkur frekar saman í andlitinu og hlammiði ykkur með þeim í sófann og upplifiði þetta með þeim. Og hana nú..........

Later later....





» 12 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 22:31:59 / hansberg

..............

                                       Ása ég elska þig ;)

Kannski væmið, en er sannleikur.....

Kem með nýtt blogg bráðlega!!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 13:39:15 / hansberg

VOTE!!!!

Hæbb. 8)8)8)

Jæja, í dag eru kosningar. Það er nú ekki búið að fara framhjá manni síðustu daga. Endalausar auglýsingar og áróður. Frambjóðendur voru meira að segja orðnir svo örvæntingafullir að þeir stóðu út um allan bæ í gær og dreifðu nammi, blöðrum og alls konar varningi, bara til að sleikja sig upp við kjósendur á síðustu metrunum.

Ég og Ása fórum í Mjóddina í gær og þar var allt crazy og morandi í svona smjaðrandi fólki sem að vildi alltí einu bara gefa manni allt. Það kom maður upp að okkur og sagði, "Má bjóða ykkur súkkulaðirúsínur?" Auðvitað sagði ég já. Þegar að ég skoðaði kassann sá ég að Samfylkingin var að dreifa þessu. "Cool" hugsaði ég og fann að kassinn var svolítið þungur og hugsaði ég mér þá gott til glóðarinnar.:P Nóg af súkkulaðirúsínum. En svo þegar að ég opnaði kassann að þá varð ég nú heldur betur fúll:^). Þar voru þeir búnir að troða nafnspjöldum frá öllum úr Samfylkingunni, ca. 40 manns og þar við hliðina voru svona 10 rúsínur í poka. Hversu glatað er það? Ég var allavegana ekki sáttur og henti þessu í næsta rusladall. Helvítis plot í þessu fólki.

En ég er samt búin að vera hugsa síðustu daga að maður verður nú að nýta kosningarréttinn sinn. Og úr því að maður ætlar að gera það, afhverju þá ekki að pæla í því sem er í boði og kjósa rétt.

 Ég mun ekki kjósa Framsóknarflokkinn, því að gæinn sem er þar í 1. sæti er frekar óaðlaðandi týpa, búinn að overdoza á gulum brúnkuklútum og svo finnst mér Framsóknarmenn bara svo ömurlega smeðjulegir. Sjálfstæðisflokkinn kýs ég ekki, helvítis snobb lið. Frjálslyndiflokkurinn, hef bara ekki neina þekkingu á þeim og þeirra stefnumálum. Þannig að eftir standa Vinstri grænir og Samfylkingin. Skoðaði aðeins bækling frá Vinstri grænum í gær og leist vel á þeirra stefnumál. Og svo heyrði ég að Samfylkingin ætlar að byggja 20. nýja körfuboltavelli í reykjavík(bætir kannski upp fyrir helv... súkkulaðirúsínurnar) og að styrkja ungt fólk til íþróttaiðkunar. Þannig að valið stendur þarna á milli. En svo er bara að sjá hvort þeir standi við þessi loforð sín.


Fariði og kjósið.....

Leiter:!:


ps. shit hvað þetta var pólitísk færsla, lofa að koma með eitthvað "good shit" næst:!:


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 20:54:47 / hansberg

Íslenskt skíta veður.....

What´s cookin in the mofo kitchen....

Jæja, er ekki verið að grínast í manni. Það er 23. maí og það Snjóar:!::!::!: Ég er að vinna úti, hélt að ég væri rosalega heppinn að fá vinnu úti og vera að vinna úti í sumar. En neei, í dag snjóaði bara eins og það væri desember. Ég var ekki sáttur og bölvaði þessu helv....:klikk: skíta veðri í sand og ösku og viti menn. Þá var eins og sá sem að stjórnar veðrinu hafi hugsað, "Er hann að bölva þessu, hvað ætli hann segi þá um þetta. hahahahaha" og sendi hann þá eina aukagusu af íslenskum eðalsnjó beint í fangið á mér. Sem að ég var allta annað en parsáttur með:^):^) En svona án gríns, það er komið vor og næstum því sumar og maður er með sultardropa á nefi, frjósandi tær og ískalda putta. What´s going ON'????

Make it or bake it......

Pís át........


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 20:14:28 / hansberg

Eurovision

Hæ...


Hvað segið þið gott? Ég segi bara nokkuð gott sko!!! Ég horfði á Eurovision í gær eins og flestir aðrir ábyggilega. Sem sagt engar stórfréttir :haha: Ég var rosalega sáttur við úrslitinn. Finnarnir:evil: voru laaaang flottastir. Kominn tími til að hrista aðeins uppí þessu europoppi. Hardrock halelúja er bara nett lag og ég náði í það á netinu strax og keppnin var búinn.

Mér fannst Sigmar úr Kastljósinu bara standa sig vel í hlutverki lýsandans. En það fer samt svo í taugarnar á mér þessi húmor hjá þeim sem að lýsa Eurovision að þykjast alltaf vera rosalega hissa þegar að nágrannaþjóðir eru að gefa hvort öðru stig. Frasar eins og "Nú er ég hissa, ég sit bara hérna með hökuna í gólfinu." eru orðnir ansi þreyttir. Hvernig væri það ef að lýsarnir mundu bara snappa í útsendingunni og öskra í beinni útsendingu "Helvítis djöfulsins klíkuskapur alltaf hreint. Hvernig væri að þeir mundu nú gefa alvöru lögum atkvæði, en ekki að vera alltaf með þennan helvítis andskotans klíkuskap. Helvítis djöfulsins:^)" það mundi aðeins krydda útsendinguna :haha::haha:

En talandi um að missa sig. Mér fannst Litháeska lagið nokkuð gott líka. Og átti þar stóran þátt, maðurinn sem að snappaði gjörsamlega inná sviðinu. Virkaði svona virðulegur og alvarlegur bakraddasöngvari, en gekk svo út á sviðið og "lost it" :haha::haha::haha: Mjög fyndið..



Peace out.


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 13:32:57 / hansberg

Aiiiiight.....

Góðan daginn............

Loksins komin helgi. Ég byrjaði í nýju vinnunni á fimmtudaginn. Bara fínt að vinna sem smiður, erum að byggja bílskúr í Skipasundi. Fjölbreytnin er mikil í þessu starfi og hafa fyrstu tveir vinnudagarnir flogið áfram. That´s good. Ömurlegt að vinna einhversstaðar þar sem að maður heyrir jafnvel klukkuna tifa:frown::frown:

Svo er Eurovision í kvöld. En við komumst ekki í úrslitin þannig að maður á eftir að hvetja Finnland áfram. Flottir gaurar með fínt lag:haha:

Hef ekkert meira í

bili.




Later.....

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 14:34:04 / hansberg

Þá er komið að því....

Zzööp

Aiiiight. Nú verður fagnað. Heimsóknir inná síðuna mína hafa loksins náð yfir 1000. Þó svo að ég viti að megnið af þessum heimsóknum koma frá mínum nánustu verð ég bara að vera nokkuð sáttur við þá hollustu sem mér er sýnd. Respect. En nú er næsti áfangi bara 2000 og verð ég nokkuð fúll:( ef að hann næst ekki fyrir lok þessa mánaðar:!::!::!:

Svo er það THE GAME í kvöld. Arsenal vs. Barcelona í úrslitum meistaradeildarinnar. Þetta verður rosalegur leikur sem að margir eru búnir að vera að bíða efitr og þar á meðal ég. Þetta eru án efa tvö skemmtilegustu liðin í Evrópu og á maður því von á feikilegu stuði... Ég er Barcelona-maður og bróðir minn er Arsenal-maður og þorði hann ekki að vera heima og horfa með mér á Barcelona lyfta bikarnum. Kom hann sér þess vegna fyrir í öruggu skjóli innan um einhverja Arsenal félaga :haha::haha:

Ég var að hlusta á Mín skoðun með Valtý Birni og Bödda Bergs áðan. Voru þeir þar með skoðanakönnun í gangi um það hvor væri betri leikmaður, Henry eða Ronaldinho. Ég verð að segja eins og er, að velja á milli þeirra er eins og að maður þyrfti að velja á milli hvort maður elskaði meira mömmu sína eða pabba, svo jafnir eru þeir. En ef ég ætti að velja, þá mundi ég segja að Ronaldinho hafi þar aðeins betur. Tek það samt fram að Henry er líka GEÐVEIKT GÓÐUR og einn af mínum uppáhaldsleikmönnum og gerir ótrúlega hluti. En Ronaldinho er samt svona leikmaður, að þú ert alltaf að búast við einhverju ROSALEGU þegar að hann fær boltann. Af 10 mögulegum mundi ég gefa Henry svona 9.85 og Ronaldinho 10. Hvað finnst ykkur???

En nóg frá mér í bili.

Sé þig seinna krókódíll....

ÁFRAM BARCELONA:!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!:



» 4 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 18:56:21 / hansberg

What a game what a game....

Jæjajæja....

Shiiiit.. Ég varð vitni að einum svakalegasta leik sem að ég hef á ævinni séð. Ég var sem sagt að horfa á úrslitaleikinn í bikarkeppninni á Englandi. Liðin voru Liverpool og West Ham og þeir sem að þekkja mig vita að ég held með Liverpool.

 Ég kom mér vel fyrir rétt fyrir leik, var einn heima. Ása var að læra. Svo byrjaði leikurinn og var þetta svona eins og maður bjóst við, liðinn að þreifa fyrir sér. En svo fóru West Ham að verða ansi kraftmiklir og náðu tökum á leiknum. sem að endaði með því að Jamie Carragher skoraði sjálfsmark við litla hrifningu mína. En ég hugsaði samt að þetta voru bara óheppileg mistök sem að voru engum að kenna og nú þyrftu Liverpool bara að halda áfram að spila sinn leik, en svo 8 mín síðar skoraði West Ham 2-0 og þá varð ég brjálaður og öskraði eins og vitfirringur á sjónvarpið. Eftir þetta hófust erfiðar mínútur í svitabaði og blótsyrðum í áttina að áður nefndu sjónvarpi(tek það aftur fram, ég var EINN heima). En svo hafðist það Liverpool jafnaði og hoppaði ég hæð mína uppúr rúminu og öskraði af gleði og barði í vegginn og hurðina til að tjá gleði mína :D En, West Ham skoraði fljótlega aftur og byrjaði ég næstum því að grenja úr pirringi(vil benda á eina færslu hér að neðan sem segir hversu tapsár ég er), en fór svo að hugsa með mér, þeir eiga þetta skilið, búnir að vera betri allan leikinn. En svo á 91 mín. skoraði Gerrard. Þvílíkur fótboltamaður og þvíííílíkt mark:P:P:P Og aftur tóku við erfiðar mínútur með meira svitabaði og æsingi. Til að gera langa sögu stutta unnu Liverpool leikinn í vítaspyrnukeppni og fór Reina þar á kostum og varði 3 vítaspyrnur og tryggði sætann sigur.

En eftir svona leik hugsar maður, æji bæði liðin voru nú sigurvegarar leiksins, svo rosalegur leikur var þetta. En Liverpool hjartað slær nú sælt og rólegt. Ég leyfði Ásu að vera í beinu sambandi, þar sem að hún var að læra og hló hún nú bara af æsingnum í mér:haha:

Á morgun byrjar Landsbankadeildin í fótbotla og er mikið búið að vera að ræða um hverjir verða meistarar og hvernig röðunin verður á liðunum. Ég ákvað að verða ekki eftirbátur annarra fyrirmyndar fjölmiðlar og tók saman mína spá. Hún er eftirfarandi.

1. Valur 

2. KR

3. FH

4. ÍA

5. Keflavík

6. Fylkir

7. Grindavík

8. Víkingur

9. ÍBV

10. Breiðablik    

Svo er bara að sjá í haust hvort að ég hafi eitthvað vit á þessu. En ég stend við þessa spá og verð þá að éta það ofan í mig ef hún klikkar.

Keep your faith and I will respond....


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 14:52:25 / hansberg

Life´s good, isn´t it.....

Come stai....(ítalska meiningin yfir "hvernig hefurðu það")

Jæja þá er það afgreitt. Maður er bara komin með vinnu í sumar. Eftir að hafa verið stunginn í bakið af einu húsgagnasmíðaverkstæði:evil: bauðst mér önnur vinna. Og er ég bara þokkalega sáttur við það, þó svo að ég hafi verið mjög stressaður í gær þegar að það kom til tals að ég fengi vinnu þar. Ég var eiginlega bara hreint út sagt skíthræddur:$. Veit ekki við hvað, en á meðan sumir eru oft mjög spenntir yfir því að fara að vinna á nýjum stöðum að þá hræðir það mig. Bara hugsunin við nýtt og ókunnugt umhverfi og að maður þekkir engan gerir mig bara alltaf svolítið smeykan. Ég er að fara að vinna hjá smíðafyrirtæki sem heitir Gunnar&Gylfi og er það önnur ástæðan fyrir hræðslu minni. Útaf því að íslenskir iðnaðarmenn eru í mínum augum bara geðveikir vinnualkar og þeir sem þekkja stráksa eitthvað, vita það að hann er ekki hrifinn af OF mikilli vinnu. Vinna er allt í lagi, en OF mikil vinna er geðveiki :!:   En vonum bara að hann komi lífs af :)

Annað: Það er 12. maí í dag. Sem þýðir að einn mjög góður vinur minn á afmæli í dag og er hann orðinn 24 ára. Þess vegna vil ég að allir sem lesa þetta ÖSKRI hátt og skýrt "Til hamingju með afmælið Hilmir." Já það er rétt, Hilmir á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið vinur.

Enough is enough...

peace out....

ps. vil minna ykkur á að þið getið enn svarað spurningum um Stráksa og reynt að komast í Einar´s hall of fame. Sjá síðustu færslu. Endilega takiði þátt....


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 18:24:27 / hansberg

Fresh shiiiiiit.....

Jæja jæja...

Nú er komið að því. Nú gefst ykkur færi á að sýna hversu vel þið þekkið stráksa. Sá sem fær flest stig verður tekinn inn í Einars hall of fame!

Lets get reaaaaady to rumble!!!!

Ýtið hér

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 21:44:08 / hansberg

yoyoyo...

Wazz´up...

Hvað segir fólk í dag? Langaði bara að tékka á því.

Nú ætla ég að biðja fólk sem kíkir hérna og þekkir mig eitthvað að segja eitthvað eitt jákvætt og eitt neikvætt um mig.(kosti og galla)

Meira var það ekki í bili.

Peace out...

 

ps. ekki vera feimin við að skrifa hvað ykkur finnst, lofa að móðgast ekki. Læt ykkur allavega vita ef það gerist:haha:


» 18 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 17:06:35 / hansberg

Einmanna með eindæmum...

Wazz´up homies.

Það hefur lítið verið að gerast síðast ég bloggaði síðast. Er eiginlega búin að eyða þeim tíma sem hefur liðið ALEINN. Málið er að Ása er að byrja í prófum og byrjaði að lesa fyrir þau strax um páskana. Hún er rosalega dugleg að lesa og mjög samviskusöm. Það er bara gott mál sko. En síðan hún byrjaði að lesa af krafti hef ég bara verið eins og villuráfandi hundur, veit ekkert hvað ég á að gera(nenni ekki að taka til í herberginu mínu Ása!). Ég er samt byrjaður í prófum, en þar sem að Iðnskólinn er á botninum yfir erfiðustu skóla á Íslandi, þarf ég ekki mikið að læra. Þannig að ég er að pæla í því að skrifa menntamálaráðuneytinu bréf þar sem ég ætla að skora á þá að þegar að kærustur manns fara að lesa undir erfið próf séu þeir skildugir að finna eitthvað fyrir mann að gera á meðan!!!! Til dæmis að styrkja mann í utanlandsferðum og svoleiðis stuff.

Til að þið gerið ykkur grein fyrir erfiðum tíma í aðgerðarleysi á meðan kærastan manns er í prófum skal ég lýsa fyrir ykkur einum degi.

Ég vakna svona rétt fyrir hádegið. Fer fram fæ mér eitthvað að borða, yfirleitt er það eitthvað mjög ekki hollt. Svo labba ég að tölvunni og kíki yfir úrslit næturinnar í NBA og útfrá því vafra ég eitthvað um netið. Stend svo upp og labba inn í herbergi, kíki hvort það sé eitthvað í sjónvarpinu, ef það er ekkert set ég eitthvað í dvd spilarann og horfi á það. Rölti svo framm þegar að það er komið kaffi. Fæ mér eitthvað sem er til og rölti aftur inn í herbergi, geri armbeygjur og magaæfingar og ef ég nenni geri ég nokkrar bakæfingar. Svo fer ég að gera mig ready fyrir að fara út og skjóta á körfu. Er svona 2 tíma að koma mér út, er þar í svona klukkutíma EINN að skjóta. Fer svo aftur inn og fæ mér eitthvað að borða, fer í sturtu og klæði mig svo í náttbuxur horfi á einhverjar íþróttir í sjónvarpinu svo þegar að fer að líða á kvöldið finn ég mér eitthvað að gera, vafra á netinu og eitthvað svoleiðis stuff. svo er klukkan orðin miðnætti, fer ég þá inní herbergi finn mér eitthvað að horfa á og eftir það fer ég að sofa EINN.

Glæsilegur dagur ekki satt? Verð samt að segja að þeir eru nú ekki allir svona, tók bara einn slæman sem dæmi. Verð líka að koma því að að á meðan þegar dagarnir líða heyri eg svona 1000 sinnum í Ásu. Og svo er annað, það er náttúrulega bara mér að kenna að ég sé alltaf EINN. En ég ætla samt að skora á þá í menntamálaráðuneytinu að gera eitthvað í þessu :D

Þangað til næst

Peace out........

ps. ég ætla að fara að skrifa pínulítið um körfubolta hér, hvernig líst ykkur á það?


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan